Orri Hrafn Kjartansson hefur æft með Fylkismönnum að undanförnu og var áhugi frá Árbæjarliðinu að fá hann að láni til félagsins frá hollenska félaginu Heerenveen.
Orri staðfesti í samtali við Fótbolta.net að hann muni ekki leika með Fylki í sumar og muni snúa til æfinga hjá Heerenveen þegar þær hefjast.
„Þeir [hjá Heerenveen] ætla sjá til hvort það henti að kalla mig út í júní, annars fer ég út aftur 15. júlí," sagði Orri í dag.
Orri er átján ára miðjumaður sem gekk í raðir hollenska félagsins frá Fylki sumarið 2018.
Sjá einnig:
Orri Kjartans: Allt var á góðu skriði - Stefni alla leið
Athugasemdir