19.09.26 - 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Albert hafði betur í fjörugum Íslendingaslag

Mynd: Venezia FC

Mynd: Lazio

Mynd: Venezia FC
Venezia 0 - 2 Lazio
0-0 John Yeboah ('17 , Misnotað víti)
0-1 Mattia Zaccagni ('51 , víti)
0-2 Tijjani Noslin ('60 )
0-0 John Yeboah ('17 , Misnotað víti)
0-1 Mattia Zaccagni ('51 , víti)
0-2 Tijjani Noslin ('60 )
Þórir Jóhann Helgason var í byrjunarliði Venezia í fyrsta sinn í deildarleik á tímabilinu í Serie A og stóð sig vel á heimavelli gegn Lazio.
Nýliðar Venezia áttu frábæran fyrri hálfleik, þeir sköpuðu mikið af dauðafærum og fengu vítaspyrnu en John Yeboah klúðraði eftir stutt rifrildi um hver fengi að taka spyrnuna.
Christos Mandas markvörður Lazio gerði vel að verja vítið og átti hann stórleik. Hann átti nokkrar meistaralegar markvörslur og fundu Feneyingar enga leið framhjá honum, svo staðan var markalaus þegar lið gengu til búningsklefa.
Heimamenn voru talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en leikurinn var jafnari eftir leikhlé. Mattia Zaccagni fyrirliði Lazio náði forystunni með marki úr vítaspyrnu eftir að Yeboah, sem klúðraði spyrnunni fyrir Venezia í fyrri hálfleik, braut afar klaufalega af sér innan teigs.
Níu mínútum síðar tvöfaldaði Tijjani Noslin forystuna fyrir Lazio og reyndu Feneyingar að minnka muninn, en tókst ekki.
Þórir Jóhann lék fyrstu 73 mínúturnar, en skömmu síðar var Alberti Guðmundssyni skipt inn af bekknum hjá Lazio.
Venezia kom sér í góðar stöður á lokakaflanum en náði ekki að skapa mikla hættu, svo lokatölur urðu 0-2.
Lærlingar Gennaro Gattuso í liði Lazio hafa farið afar vel af stað á nýju deildartímabili og deila toppsætum deildarinnar með Ítalíumeisturum Inter og AS Roma. Liðin þrjú eru jöfn með 13 stig eftir 5 umferðir.
Venezia situr eftir á botninum án stiga, þrátt fyrir góða frammistöðu í dag.