Fotbolti.net
19.09.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Castellanos gæti fengið sex leikja bann

Castellanos gæti fengið sex leikja bann
Canon

Mynd: West Ham

West Ham United heimsótti Millwall í hatrömmum fjandslag í ensku Championship deildinni í dag.
Millwall komst í tveggja marka forystu en Hamrarnir náðu að jafna metin með tveimur mörkum í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 2-2.

Það var nóg um dramatík í leiknum. Á lokamínútunum lét varnarmaður West Ham reka sig af velli fyrir að brjóta viljandi af sér sem aftasti varnarmaður eftir að hafa gerst sekur um slæm mistök. Hann bjargaði mögulega marki með brotinu og einu stigi en missir af næsta leik vegna leikbanns.

Í síðari hálfleik var svo atvik sem skyggði á leikinn, þegar Taty Castellanos virtist hrækja á markvörð Millwall.

Atvikið átti sér stað á 65. mínútu þegar Millwall var tveimur mörkum yfir. Filip Marschall markvörður Millwall var að tefja leikinn eins og markmenn gera, með boltann við fæturna að bíða eftir pressu frá sóknarmanni til að taka boltann upp.

Marschall beið eftir pressu frá Castellanos áður en hann tók boltann upp og kastaði honum frá sér. Á þeirri stundu á Castellanos að hafa hrækt á Marschall. Myndavélar náðu upptöku af því sem virtist vera hráka á treyju Marschall og hefur Millwall lagt fram formlega kvörtun vegna atviksins.

Verði Castellanos fundinn sekur verður hann líklegast dæmdur í að minnsta kosti sex leikja bann.

Alex Neil og Nuno Espirito Santo, þjálfarar Millwall og West Ham, sögðust í viðtölum eftir leik hvorki hafa séð atvikið né spurt leikmenn út í það.

Championship: Skoraði og sá rautt eftir að hafa fórnað sér fyrir liðið
TENGT EFNI

Championship: Skoraði og sá rautt eftir að hafa fórnað sér fyrir liðið

Castellanos gæti fengið sex leikja bann
Canon

Mynd: EPA

Castellanos gæti fengið sex leikja bann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.