Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   mið 03. júní 2026 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Eimskip
Diljá Ýr Zomers og Sandra María Jessen á æfingu í Póllandi í dag.
Diljá Ýr Zomers og Sandra María Jessen á æfingu í Póllandi í dag.
Mynd: KSÍ - Arnar Laufdal
Sandra María er leikmaður Köln í Þýskalandi.
Sandra María er leikmaður Köln í Þýskalandi.
Mynd: Köln
„Þetta er rosalega skemmtilegt verkefni. Ég hef beðið spennt eftir þessum leik. Við fengum góð úrslit á móti þeim heima og viljum fylgja því eftir," sagði landsliðskonan Sandra María Jessen við Fótbolta.net í dag.

Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu mæta Úkraínu í Póllandi á föstudaginn. Er það mikilvægur leikur hjá stelpunum í undankeppni HM.

„Við viljum nýta það sem við erum góðar í að gera og skora kannski fleiri mörk. En fyrst og fremst að ná í góð úrslit."

Ísland vann fyrri leik þessara liða 1-0 á Laugardalsvelli og Úkraína þarf að vinna leikinn á föstudaginn til að eiga möguleika á þriðja sæti riðilsins.

„Það kæmi ekki á óvart ef þær kæmu aðeins agressívari í þennan leik. Þær þurfa að sækja úrslit. Þær eru þá væntanlega að fara að stíga ofar gegn okkur. Það opnar kannski önnur svæði sem við þurfum að nýta okkur. Við þurfum að vera klárar í að lesa í það sem þær eru að gera."

Ótrúlega lítill heimur
Sandra er að koma inn í þetta landsliðsverkefni eftir frábært tímabil með Köln í Þýskalandi þar sem hún var með markahærri leikmönnum þýsku Bundesligunnar. Hún skoraði tólf mörk í einni sterkustu deild Evrópu og er að vonum glöð með þann árangur.

„Ég er fyrst og fremst glöð að hafa tekið þá ákvörðun að fara aftur út. Þetta var alltaf draumurinn á bak við eyrað eftir að ég eignaðist Ellu dóttur mína og ég er ótrúlega stolt að því að hafa fengið tækifærið að gera það aftur. Ég held að Köln hafi verið það fullkomna fyrir mig, nákvæmlega rétt ákvörðun að fara þangað," sagði Sandra María.

„Ég er hálfur Þjóðverji og mér líður mjög vel í Þýskalandi. Það er eitt tímabil búið og ég er spennt fyrir því næsta."

Það er ótrúleg tilviljun að foreldrar Söndru Maríu kynntust í Köln og nú er hún að spila fótbolta þar.

„Ég elska þýsku menninguna og það er gaman að rætur mínar liggja í kringum Köln þar sem foreldrar mínir kynnast og tveir bræður mínir fæðast í nágrenninu. Þetta er mikill fjölskyldustaður. Fótboltinn og lífið allt í kring er rosalega gott."

„Það er ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp á borðið þar sem pabbi minn er búinn að vera aðdáandi Köln frá því hann var lítill strákur og ég man eftir honum heima þegar ég var lítil í Köln treyju, alltaf að fylgjast með strákunum hvernig þeir stóðu sig. Þetta er ótrúlega gaman, lítill heimur," sagði Sandra María.

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner