03.07.15 - 18:00
Eyþór Ernir Oddsson
Neto til Juventus (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Juventus hefur gengið frá félagaskiptum Norberto Neto til félagsins, en hann er markvörður sem kemur frá Fiorentina.
Samningur Neto við Fiorentina rann út og kemur Neto því á frjálsri sölu. Hann vildi ekki endurnýja samning sinn við félagið þar sem hann vildi fara til Juventus.
Neto skrifar undir samning sem gildir til 30. júní 2019, eða til fjögurra ára en hann á að verða staðgengill Gianluigi Buffon.
Neto skrifar undir samning sem gildir til 30. júní 2019, eða til fjögurra ára en hann á að verða staðgengill Gianluigi Buffon.
Heimild: Football-Italia
