Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mið 03. júlí 2019 21:54
Arnar Helgi Magnússon
Alli: Höfum markaskorara sem heitir Hólmfríður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, var sáttur í leikslok eftir 1-0 sigur sinna stelpna gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.

Lestu um leikinn: Selfoss 1 -  0 KR

„Frábær þrjú stig. Þetta var ekki besti leikurinn okkar, KR var betri aðilinn í leiknum. Við höfum markaskorara sem að heitir Hólmfríður og hún potaði inn einu, það skilur að," sagði Alfreð eftir leikinn í kvöld.

„Það var bara þungt yfir þessu hjá okkur, við vorum bara þungar. KR var bara ferskari og betra liðið."

Selfoss situr í fjórða sæti deildarinnar eftir leikinn í kvöld og segir Alfreð liðið komið á þann stað þar sem að það vill vera.

„Já, nú þurfum við bara að taka okkur smá frí frá boltanum. Það er búið að spila marga leiki á fáum dögum og þetta er búið að vera erfitt. Við erum tilbúin í Eyjar!

Alfreð segir að Selfoss ætli að styrkja sig í glugganum.

„Það mun eitthvað gerast, eigum við ekki að segja það. Hvort það verði einn, tveir eða þrír. Það mun eitthvað gerast," sagði Alfreð að lokum.
Athugasemdir
banner
banner