Gary Lineker, stjórnandi Match of the day, er afar ósáttur við þá reglu að mörk séu dæmd af ef leikmenn fá boltann í hendina í aðdraganda marks, hvort sem það sé viljandi eða óviljandi.
Undanfarið hafa nokkur mörk verið dæmd af vegna þessa, til að mynda mark Harry Kane gegn Sheffield United í gær þar sem Lucas Moura datt og fékk boltann í höndina í aðdraganda marksins eftir baráttu við varnarmenn.

Lineker ákvað að skrifa til FIFA og reglugerðarsamtaka á Twitter og óska eftir breytingum.
„Getið þið vinsamlegast hent nýju reglunni um hendi? Hún hjálpar varnarmönnum mjög mikið og þetta er hrikalega ósanngjarnt," sagði Lineker.
„Þetta verður til þess að alltof mörg fullkomlega góð mörk eru dæmd af. Þetta setur VAR dómarana í skaðlega stöðu. Flestar reglubreytingar ykkar eru frábærar en þessi er skelfileg."
Dear @FIFAcom @TheIFAB. Please get rid of the new handball law? It’s hugely biased towards defenders. It’s grossly unfair. It’s disallowing far too many perfectly good goals. It’s putting VAR referees in an invidious position. Most of your law changes are great. This one is awful
— Gary Lineker (@GaryLineker) July 3, 2020
Athugasemdir