Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 03. júlí 2020 18:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mirror: Bruno og Pogba meiddust á æfingu
Pogba hljóp óvart á Bruno á æfingu í dag. Óljóst er hvort þeir verði með á morgun.
Pogba hljóp óvart á Bruno á æfingu í dag. Óljóst er hvort þeir verði með á morgun.
Mynd: Getty Images
Breski miðillinn Mirror greindi frá því rétt í þessu að bæði Paul Pogba og Bruno Fernandes, miðjumenn Manchester United, hefðu meiðst á æfingu liðsins í dag.

Þeir sáust báðir haltra á æfingasvæði félagsins eftir að hafa lent í samstuði.

Mirror segir þá tæpa fyrir leikinn á morgun gegn Bournemouth og gætu verið utan vallar þegar United reynir að klófesta Meistaradeildarsæti. Óljóst er hversu alvarleg meiðslin eru.

Pogba hljóp óvart á Fernandes á æfingu liðsins á Carrington æfingasvæðinu í dag með þeim afleiðingum að þeir höltruðu eftir samstuðið.

Báðir voru þeir teknir til hliðar til aðhlynningar og United hefur neitað að tjá sig um stöðu miðjumannanna. Mirror bætir því við að Bruno sé sá sem leit út fyrir að hafa farið verr út úr samstuðinu.

United mætir Bournemouth klukkan 14:00 á morgun í beinni útsendingu á Síminn Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner