Fotbolti.net
22.06.26 - 16:29
Kári Snorrason

Demichelis tekinn við Leipzig (Staðfest)

Demichelis tekinn við Leipzig (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Argentíski stjórinn, Martin Demichelis, hefur verið ráðinn sem nýr stjóri þýska félagsins RB Leipzig.

Demichelis kemur frá Malaga en hann tók við stjórnartaumunum á spænska liðinu í febrúar en tókst ekki að bjarga félaginu frá falli.

Undir stjórn Demichelis sótti Malaga 18 stig úr 12 deildarleikjum þrátt fyrir það endaði liðið á að falla með 42 stig sem er nokkuð sjaldgæft.
Demichelis þekkir vel til Þýskalands en hann lék með Bayern Munchen sem leikmaður. Hann stýrði jafnframt unglingaliði Bayern og varaliðinu í upphafi þjálfaraferilsins.

Þá er hann einnig þekktur fyrir tímann sinn hjá Manchester City en hann var á mála hjá liðinu 2013 til 2016 og spilaði hann yfir hundrað leiki fyrir félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.