Fotbolti.net
03.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal hefur áhuga á Konsa

Arsenal hefur áhuga á Konsa
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal hafa mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Ezri Konsa frá Aston Villa. Þetta segir Telegraph.
Ezri Konsa er 28 ára gamall miðvörður og fastamaður í enska landsliðinu.

Hann á tvö ár eftir af samningi sínum við Aston Villa og er félagið sagt tilbúið að selja hann fyrir 60 milljónir punda. Sú upphæð er þó aðeins hærri en Arsenal er reiðubúið að greiða.

Arsenal hefur einnig áhuga á liðsfélaga Konsa hjá Aston Villa og enska landsliðinu, Morgan Rogers. Hann er hins vegar verðmetinn á 130 milljónir punda.

Það á eftir að koma í ljós hvort Arsenal leggi fram tilboð í þá báða, eða hvort félagið láti sér nægja að reyna við annan þeirra.

Báðir eru með enska landsliðinu á HM. Konsa hefur byrjað alla fjóra leiki liðsins á mótinu, en Rogers hefur byrjað einn og komið tvisvar inn af bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.