Hallgrímur Mar: Þetta var eiginlega bara ógeðslegt
Auglýsing

„Þetta verður ömurleg heimferð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta verður ömurleg heimferð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA sótti Víking heim í 13. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Leikar enduðu 3-2, Víkingum í vil. Sigurmark Víkinga kom á 95. mínútu. Fótbolti.net náði tali af Hallgrími Mar Steingrímssyni sem skoraði tvö mörk fyrir KA í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KA
„Þetta var eiginlega bara ógeðslegt. Við vorum búnir að leggja líf og sál í þennan leik og að fá mark í grillið á 95. mínútu er eins svekkjandi og það gerist," sagði Hallgrímur Mar eftir leik.
„Við vorum betri aðilinn, fannst mér meirihlutann af leiknum og áttum meira skilið. En þú getur ekki gefið þeim færi, þá refsa þeir. En flott frammistaða og eitthvað sem hægt er að byggja á."
Hallgrímur var ánægður með varnarleik liðsins þó svo að liðið hafi fengið á sig þrjú mörk í dag.
„Mér fannst við ekki gefa mörg færi á okkur, þó þeir hafi verið meira með boltann í seinni hálfleik. Það voru bara allir að leggja sig fram og fara fyrir alla bolta. Ég get ekkert sett út á liðið hjá okkur í dag, það voru allir að standa sig vel. Þetta lið mun labba yfir þessa deild þannig að það hefði verið mjög gott að koma hérna og taka jafntefli," bætti Hallgrímur Mar við að lokum