Fotbolti.net
02.07.26 - 22:53
Helgi Inguson

Sölvi um meiðsli Arons: Þetta leit ekki vel út

Auglýsing
Aron Snær markvörður Víkings fór meiddur af velli.

Aron Snær markvörður Víkings fór meiddur af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er svona eins og við héldum að hlutirnir yrðu auðveldir eftir fyrsta markið, það er aldrei gott að finnast það," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir 3-2 sigur gegn KA á Víkingsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KA
„Við byrjuðum rosalega vel, fyrstu fimm mínúturnar fram að markinu okkar voru frábærar. Stórkostleg spilamennska, ég man ekki eftir að KA hafi snert boltann oft á þessum fyrstu fimm mínútum. Bara virkilega flott mark," sagði Sölvi.

Víkingsliðið tapaði niður forskoti eftir að hafa komist yfir eftir fimm mínútna leik. Sölvi var ósáttur með þann kafla í fyrri hálfleiknum.

„Mér fannst við alltof langt frá mönnum, boltinn gekk hægt, við vorum ekki að gera það sem við lögðum upp fyrir leikinn að láta boltann ganga hratt á milli kanta. Við lagfærðum það í seinni hálfleiknum, ég var sáttur með karakterinn í liðinu. Hvernig þeir höfðu trú á þessu alveg fram í lokin og héldu áfram að berjast fyrir sigrinum."

Næsti leikur Víkings er gegn ungversku meisturunum, Györi ETO, í fyrstu umferð undankeppni Meistaradeildarinnar.

„Evrópuleikirnir hafa gefið okkur öllum í Fossvoginum góðar minningar og við hlökkum til að skapa góðar minningar saman í Evrópu núna. Við erum aðeins búnir að skoða þá og á undirbúningstímabili þeirra getur verið krefjandi að finna leikina þeirra. Þeir eru búnir að skipta um þjálfara og nokkur óvissumerki um hvernig þeir munu spila."

Aron Snær Friðriksson, markvörður Víkings, fór meiddur af velli um miðbik seinni hálfleiks eftir að hafa lent í árekstri við Olver Heiðarsson, leikmann KA,. Meiðslin litu illa út en Aron haltraði af velli. Ögmundur Kristinsson kom inn í hans stað.

„Ég á eftir að fá að vita betur um stöðuna á honum. Þetta leit ekki vel út, vonandi fyrir okkur og hann er þetta ekki alvarlegt. Gott að hafa Ögmund á bekknum sem kom sterkur inn og á frábæra vörslu hér í lokin til að tryggja okkur þessi þrjú stig,"
sagði Sölvi að lokum.
Sölvi kveðst ekki horfa í deildina heldur einbeita sér að frammistöðu eigin liðs leik eftir leik.

Sölvi kveðst ekki horfa í deildina heldur einbeita sér að frammistöðu eigin liðs leik eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.