Fotbolti.net
02.07.26 - 21:37
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd í beinu sambandi við West Ham

Man Utd í beinu sambandi við West Ham
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur hafið viðræður við West Ham um hollenska vængmanninn Crysencio Summerville. Þetta segir enski blaðamaðurinn Ben Jacobs.
Það er öruggt að Summerville muni yfirgefa West Ham í sumar eftir að liðið féll niður í B-deildina.

Samkvæmt Jacobs hefur United sett sig í beint samband við West Ham vegna Summerville.

Heimildarmenn Jacobs segja United aðeins vera að kanna stöðuna eins og er, en Hollendingurinn sé ofarlega á óskalista félagsins.

Fram kemur að mögulegt tilboð United muni ráðast af því hvort Marcus Rashford verði seldur frá félaginu. Rashford er kominn aftur til Manchester United eftir að hafa verið á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð.

Tottenham er einnig sagt áhugasamt um Summerville.

Summerville, sem er 24 ára gamall, var frábær með West Ham á síðasta tímabili og vakti einnig athygli með Hollandi á HM í sumar. Þar skoraði hann tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar áður en Hollendingar duttu úr leik eftir tap gegn Marokkó í 32-liða úrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.