Fotbolti.net
03.07.26 - 18:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Palhinha kveður Tottenham - „Hefur haft djúpstæð áhrif á lífið"

Palhinha kveður Tottenham - „Hefur haft djúpstæð áhrif á lífið"
Canon

Mynd: EPA

Joao Palhinha hefur staðfest að hann verði ekki áfram hjá Tottenham en hann var á láni hjá félaginu frá Bayern Munchen á síðustu leiktíð.
Það er útlit fyrir að hann muni ganga til liðs við Sporting í Portúgal. Hann er alinn upp hjá Sporting og spilaði með aðalliðinu frá 2016-2022.

Palhinha spilaði 45 leiki fyrir Tottenham á síðustu leiktíð og spilaði lykilhlutverk þegar liðinu undir lok tímabilsins þegar liðinu tókst að halda sæti sínu í deildinni.

„Ég skrifa þessi skilaboð með innilegu þakklæti fyrir alla þá góðvild og stuðning sem þið hafið alltaf sýnt mér á meðan ég hef spilað fyrir þetta sérstaka félag," skrifar Palhinha til stuðningsmanna á Instagram síðu sína.

„Að spila fyrir Tottenham hefur haft djúpstæð áhrif á líf mitt, ekki aðeins fagmannlega heldur einnig persónulega, og það er eitthvað sem ég mun bera með mér að eilífu."

„Lundúnir gáfu mér meira en bara atvinnumannaferil, þær gáfu mér tvö heimili sem ég mun alltaf bera í hjarta mínu," skrifar Palhinha en hann spilaði einnig með Fulham áður en hann gekk til liðs við Bayern.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.