24.08.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Isak og Wirtz ollu miklum vonbrigðum - „Höfum verið góðir við þá“

Alexander Isak átti ekki góðan leik gegn sínum gömlu félögum

Mynd: EPA

Florian Wirtz var ekki heldur upp á sitt besta

Alexander Isak og Florian Wirtz voru stærstu vonbrigðin er Liverpool heimsótti Newcastle United í gær, en þetta segir Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports.

TENGT EFNI
Einkunnir Newcastle og Liverpool: Vondur dagur hjá bakvörðunum
Liverpool gerði tvenn metkaup á síðasta ári þegar félagið fékk Florian Wirtz og Alexander Isak.
Wirtz kostaði 116 milljónir punda þegar hann kom frá Bayer Leverkusen og síðar greiddi Liverpool 125 milljónir fyrir Isak frá Newcastle.
Hvorugur hefur náð sér almennilega á strik á Anfield. Isak var frá keppni stóran hluta síðasta tímabils vegna meiðsla en Wirtz átti góða spretti án þess að ná að aðlagast enska boltanum að fullu.
Þeir létu lítið fyrir sér fara í 2-2 jafnteflinu gegn Newcastle í gær og Gary Neville segir tímabært að þeir fari að réttlæta verðmiðann.
„Stærsta málið hjá Liverpool er að félagið er með þessa tvo leikmenn sem kostuðu saman um 250 milljónir punda, Isak og Wirtz. Andskotinn hafi það, við höfum verið góðir við þá.“
„Þeir verða að fara að sýna eitthvað fyrr eða síðar, annars mun gagnrýnin verða ansi hörð. Þeir virðast báðir vera alltof miklir góðir strákar og ef þú ætlar að vera þannig er eins gott að þú sért ótrúlega góður í fótbolta.“
„Ég sé ekki þessa ákefð hjá Wirtz. Ég sé bara góðan leikmann hreyfa sig um völlinn án þess að líta nokkurn tíma út fyrir að vera staðráðinn í að láta eitthvað gerast. Hann og Isak voru mestu vonbrigði leiksins.“
„Ég hef fylgst með þeim báðum síðustu tólf mánuði og hef mikla trú á þeim. Isak er stórkostlegur leikmaður og við höfum séð hvað hann getur gert.“
„Ég hef aldrei séð neinn gera Gabriel og Saliba, eða Van Dijk og Konate, jafn erfitt fyrir og Isak gerði þegar hann lék með Newcastle í svörtu og hvítu treyjunni. Ég hef séð hann slátra varnarmönnum. Nú þurfa stuðningsmenn Liverpool, liðsfélagar hans og þjálfarateymið að fá að sjá það. Það er ástæðan fyrir því að félagið greiddi 125 milljónir punda fyrir hann,“ sagði Neville.