Fotbolti.net
23.08.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Carrick: Mér finnst þetta fáránlegt hjá þér

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, var ekki sáttur við fréttamanninn Jan Age Fjortoft hjá Viaplay eftir 2-0 tapið gegn Hull City í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

Fjortorft tók viðtal við Carrick eftir leikinn og spurði hvort leikmönnum United hefði skort ástríðu í leiknum.
„Þetta er fáránlegt hjá þér," svaraði Carrick og var alls ekki sammála Norðmanninum.

„Þú spilaðir fótbolta. Það er fáránlegt að segja þetta. Þó þú tapir, þá þýðir það ekki að þér sé alveg sama."

Fjortorft vildi þá meina að það hefði verið meiri ástríða í leikmönnum Hull. „Nei. Mörkin tvö komu úr föstum leikatriðum. Annars fengum við tækifæri. Mér finnst þetta ekki snúast um ástríðu."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.