Fotbolti.net
23.08.26 - 22:46
Brynjar Ingi Erluson

Baleba stóðst læknisskoðun hjá Man Utd

Baleba stóðst læknisskoðun hjá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Kamerúnski miðjumaðurinn Carlos Baleba er búinn í læknisskoðun hjá Manchester United en hann er á leið til félagsins frá Brighton.
Miðjumaðurinn hefur þegar skrifað undir fimm ára samning við Manchester United með möguleika á eins árs framlengingu.

Hann stóðst læknisskoðunina en verður þó frá keppni næstu tvær til þrjár vikurnar vegna ökklameiðsla.

United greiðir Brighton 65 milljónir punda fyrir hinn 22 ára gamla leikmann og geta fimm milljónir til viðbótar bæst við í árangurstengdar greiðslur.

Gert er ráð fyrir að United staðfesti kaupin á morgun. Hann verður fjórði leikmaðurinn sem Michael Carrick fær í sumar á eftir Andrey Santos, Karl Darlow og Youri Tielemans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.