þri 03. ágúst 2021 15:45
Elvar Geir Magnússon
Pedri klárar tímabilið með 73 leiki
Pedri hefur feikilega mikla hæfileika.
Pedri hefur feikilega mikla hæfileika.
Mynd: Getty Images
„Ég er löngu hættur að telja," sagði miðjumaðurinn Pedri þegar hann var spurður út í leikjafjölda sinn þetta tímabilið.

Þessi 18 ára leikmaður Barcelona hefur staðið í ströngu á tímabilinu. Hann var valinn besti ungi leikmaður EM alls staðar þar sem hann lék virkilega vel fyrir Spánverja.

Hann fór svo beint á Ólympíuleikana þar sem Spánn hefur tryggt sér sæti í úrslitaleiknum á laugardaginn. Það verður 73. leikur Pedri á tímabilinu.

Eftir að hafa öðlast reynslu hjá Las Palmas í spænsku B-deildinni lék Pedri sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Barcelona síðasta haust.

Hann lék í öllum deildarleikjum Barcelona fyrir utan einn og var einnig í eldlínunni í bikarnum og Meistarseildinni. Frammistaða hans á tímabilinu gerði það að verkum að hann var valinn í spænska landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner