„Leikurinn á laugardag tók sinn toll og þetta sat svolítið í hausnum á manni. Þetta er búið núna og við erum tilbúnar í morgundaginn," sagði landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir við Fótbolta.net í dag.
Eftir tap gegn Þýskalandi á laugardaginn á Ísland ekki möguleika á að komast beint á HM. Liðið fer hins vegar að öllum líkindum umspil með sigri á morgun gegn Tékklandi.
Eftir tap gegn Þýskalandi á laugardaginn á Ísland ekki möguleika á að komast beint á HM. Liðið fer hins vegar að öllum líkindum umspil með sigri á morgun gegn Tékklandi.
„Við förum all in í þennan leik. Við verðum að vinna og við trúum því að við getum það."
„Við erum með gott lið. Þær eru fastar fyrir en við erum það líka. Þetta verður hörkuleikur."
Leikurinn á morgun hefst klukkan 15:00 þar sem allir leikir í undankeppninni verða að fara fram á sama tíma.
„Ég hef enga trú á öðru en að það verði nóg af fólki hérna. Það er kannski að ætlast til þess að fá fullan völl á þriðjudegi klukkan þrjú en ég hef enga trú á öðru en að við fáum góðan stuðning eins og oft áður," sagði Fanndís.
Miðasala á leikinn er í gangi á tix.is
Athugasemdir