Fotbolti.net
03.09.26 - 14:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þú vilt aldrei vera heima þegar það er verkefni hjá liðinu

Kristín Dís spilar í hjarta varnarinnar hjá Breiðabliki.

Kristín Dís spilar í hjarta varnarinnar hjá Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik vann í gær rúmenska liðið Csikszereda á útivelli í Evrópubikarnum. Um seinni leik liðanna var að ræða og vann Breiðablik samanlagt stóran sigur í einvíginu. 0-1 urðu lokatölur í Rúmeníu í gær og alls vann Breiðablik átta marka sigur í einvíginu.

Kristín Dís Árnadóttir var á sínum stað í liði Breiðabliks og hún ræddi við Fótbolta.net.
Lestu um leikinn: Csikszereda 0 - 1 Breiðablik
Öll aðstaða til fyrirmyndar
„Þetta var bara nokkuð þægilegt ferðalag. Bærinn sem við spiluðum í er rúmum fimm klukkutimum frá Búkarest og allt gekk vel fyrir sig," segir Kristín Dís.

Breiðablik fór inn í seinni leikinn með sjö marka forystu. Leitar enginn hluti heilans í að það væri kannski bara fínt að vera heima, langt ferðalag og svoleiðis framundan?

„Þú vilt aldrei vera heima þegar það er verkefni hjá liðinu þínu, það eru forréttindi og alltaf skemmtilegt að spila Evrópuleiki. Við fórum í þennan leik til að vinna og bæta okkar leik."

Hvernig voru aðstæður?

„Aðstæður voru frábærar, völlurinn flottur og öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar, hótelið sömuleiðis flott. Gott veður, ég elska að spila í smá hita."

Talsvert betri en þær
Ertu sátt með leikinn?

„Já, ég er það að mestu leyti. Það tekur auðvitað smá stund að venjast grasinu en við gefum fá færi á okkur og sköpuðum mikið."

Er svona mikill munur á þessum liðum?

„ Á okkar degi erum við talsvert betri en þetta lið, þær mættu okkur varnarsinnaðri í seinni leiknum og ljóst að það átti ekki að tapa leiknum og allra síst stórt."

Gæti mætt sínum fyrrum liðsfélögum
Breiðablik verður í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð. Er einhver óskamótherji?

„Það er dregið í næstu umferð á morgun, Bröndby er eitt af liðunum sem við getum mætt og það væri gaman að endurnýja kynnin við þær. Við tökum öllum áskorunum fagnandi!"

Kristín Dís var á mála hjá Bröndby á árunum 2022-24.

Úrslitin munu koma
Breiðablik er á toppi Bestu deildarinnar en hefur tapað síðustu tveimur deildarleikjum. Næst er útileikur gegn Þrótti á mánudag. Hvernig snúa Blikar þessu við?

„Spilamennskan hefur ekki verið léleg, við þurfum að halda áfram í okkar gildi og spila okkar leik, úrslitin munu koma. Við viljum auðvitað vinna alla leiki sem við förum í en stundum gengur það ekki. Nú er undir okkur komið að sýna úr hverju við erum gerðar og svara þessu inn á vellinum," segir Kristín Dís að lokum.
8-1 stórsigur vannst í fyrri leiknum.

8-1 stórsigur vannst í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristín Dís var hjá Bröndby á árunum 2022-24.

Kristín Dís var hjá Bröndby á árunum 2022-24.

Canon

Mynd: Bröndby

Úr fyrri leiknum.

Úr fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þú vilt aldrei vera heima þegar það er verkefni hjá liðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.