Fotbolti.net
03.09.26 - 13:15
Elvar Geir Magnússon

Sarr svekktur að fara ekki til Liverpool - „Þarf að melta þetta“

Sarr verður ekki með um helgina.

Sarr verður ekki með um helgina.

Canon

Mynd: EPA

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, hefur staðfest að liðið verði án sóknarleikmannsins Ismaila Sarr þegar það mætir Fulham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Sarr missti af tapinu gegn Manchester City á Selhurst Park í síðustu umferð og verður ekki með í þessum leik, þar sem hann er meiddur. Sarr var orðaður við Liverpool rétt fyrir gluggalok en fór ekkert.

„Hann er leikmaður okkar og við erum ánægðir með það,“ segir Sage sem viðurkennir að það hafi verið vonbrigði fyrir leikmanninn að fá ekki skipti til Liverpool.

„Hann var svekktur og þarf að melta þetta, það er draumur margra leikmanna að spila með svona félagi. Hann fékk gott tækifæri en það gekk ekki upp að lokum. Ef hann vill halda áfram verður maður að eiga gott tímabil með okkur eins og hann gerði í fyrra. Við vitum að hann gæti þurft tíma til að jafna sig á vonbrigðunum."
Sóknarmaðurinn Jean-Philippe Mateta er enn á meiðslalistanum hjá Palace og verður þar næstu þrjár vikurnar eða svo.

Palace hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni, líkt og Fulham. Það eru því tvö stigalaus lið að fara að mætast í mikilvægum leik.
Pierre Sage, stjóri Palace.

Pierre Sage, stjóri Palace.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.