Fotbolti.net
03.09.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Er Enzo orðinn óvinur Chelsea?

Enzo Fernandez.

Enzo Fernandez.

Canon

Mynd: Man City

Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez yfirgaf Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans og gekk í raðir Manchester City. Kaupverðið er sagt vera 125 milljónir punda.

Enzo er 25 ára gamall. Hann kom til Chelsea frá Benfica árið 2023 og varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022.
Haraldur Örn Haraldsson, stuðningsmaður Chelsea, var gestur í hlaðvarpinu Enski boltinn á Fótbolta.net á dögunum og ræddi þar þessi skipti.

Fer hann sem óvinur Chelsea?

„Lúmskt sko," sagði Haraldur Örn. „Hann lætur helvíti leiðinlega til að komast frá félaginu."

„Hann kemur til Chelsea þegar allt er í volli. Við vinnum Sambandsdeildina, HM félagsliða og eitthvað en maður er farin að sjá teikn á lofti núna að við séum á uppleið, það sé eitthvað að fara að gerast. Þá vill hann drulla sér burt. Mér finnst þetta skrítinn tímapunktur. Hann er að fara að fá tvöfalda launahækkun hjá City og það er kannski eitthvað."

Enzo mun líka vinna aftur með nafna sínum, Enzo Maresca, hjá Manchester City. Þeir unnu áður saman hjá Chelsea.

„Hann vildi greinilega fara til hans. Ég hef enga trú á City á þessu tímabili, á lengdina litið verður þetta svo leiðinlegur fótbolti hjá Maresca," sagði Haraldur Örn.

Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.