sun 03. nóvember 2019 14:42
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu skemmtilega hreinsun Alberto Moreno
Moreno er kominn með aflitað hár.
Moreno er kominn með aflitað hár.
Mynd: Getty Images
Spænski bakvörðurinn Alberto Moreno gekk í raðir Villarreal í sumar en hefur verið að glíma við meiðsli og er því aðeins búinn að spila þrjá leiki. Þegar hann er heill virðist hann þó vera með byrjunarliðssæti og er hann í byrjunarliðinu gegn Athletic Bilbao í dag.

Aðeins nokkrar mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma þegar þetta er skrifað og er staðan enn markalaus.

Myndband úr leiknum hefur vakið mikla athygli þar sem Moreno hreinsar boltann af eigin vallarhelming á skemmtilegan hátt.

Moreno féll til jarðar eftir samskipti við sóknarmann Bilbao en lét það ekki trufla sig í varnarvinnunni. Hann lagðist á hausinn, rak fæturnar upp í loft og náði að sparka boltanum í burtu á ævintýralegan hátt.

Hreinsunin var þó til einskis því dómarinn dæmdi aukaspyrnu.




Athugasemdir
banner
banner