Fotbolti.net
03.11.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Arsenal vill fá Kroupi í janúar - Leikmenn Dortmund á radar Man Utd

Eli Junior Kroupi á gullboltahátíðinni.

Eli Junior Kroupi á gullboltahátíðinni.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Arsenal vill bæta við kostum í sóknarleikinn, njósnarar Manchester United eru fastagestir á leikjum Borussia Dortmund og markvörður Brighton hefur mikinn áhuga á að spila fyrir Real Madrid. Hér er slúðrið!
Arsenal vill fá sóknarmanninn Eli Junior Kroupi (20) frá Bournemouth í janúar, en félagið fær samkeppni frá Bayern München og Paris St-Germain um Frakkann unga. (Mirror)

Arsenal hefur einnig sýnt tyrkneska kantmanninum Kenan Yildiz (21) hjá Juventus áhuga. (Mirror)

Manchester United hefur fylgst með nokkrum leikmönnum Borussia Dortmund: sóknarmanninum Serhou Guirassy (30), enska miðjumanninum Jobe Bellingham (21), þýska miðjumanninum Felix Nmecha (26) og sænska varnarmanninum Daniel Svensson (24). (Teamtalk)

Hollenski markvörðurinn Bart Verbruggen (24) hjá Brighton myndi stökkva á tækifærið ef honum byðist að ganga til liðs við Real Madrid. (Football Insider)

Brighton fylgist einnig með varnarmanninum unga Jordan Arnolin (18) hjá Estoril en Portúgalinn hefur einnig vakið áhuga Barcelona. (Record)

Sunderland ætlar að veita stjóranum Regis le Bris fjármagn til leikmannakaupa í janúarglugganum, í þeirri von að hann snúi gengi liðsins við. (The I)

Oliver Glasner, stjóri Nottingham Forest, er undir mikilli pressu en er með stuðning leikmanna sinna eftir fund með þeim á æfingasvæði félagsins. (Telegraph)

Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni fylgjast með spænska varnarmanninum Javi Rodriguez (23) hjá Celta Vigo. Newcastle United, Everton, Bournemouth og Fulham hafa áhuga. (Teamtalk)

Atletico Madrid hyggst reyna að fá serbneska miðjumanninn Stefan Dzodic (21) frá Almeria til að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil. (Marca)
Bart Verbruggen.

Bart Verbruggen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.