Lið vikunnar í enska - Iðnaður á Anfield

Markvörður: Bart Verbruggen (Brighton) -Hollendingurinn var frábær í markinu gegn Man City og náði að halda stjörnuprýddu liði City í skefjum.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Archie Gray (Tottenham) - Varnarlínan kemur öll frá norður Lundúnum og Gray vann vel fyrir sæti sínu í vinstri bakverði. Hefur stigið upp eftir afleitt gengi Tottenham og braut ísinn gegn Palace um helgina.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Ezri Konsa (Arsenal) - Varðist og barðist eins og ljón í 1-0 iðnaðarsigri Englandsmeistara Arsenal á Anfield. Kaup sem hafa heppnast vel.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jan Paul van Hecke (Tottenham) - Skoraði gott mark eftir harðfylgi og hefur komið vel inn í lið Tottenham eftir að hafa verið keyptur dýrum dómi frá Brighton í sumar.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jurrien Timber (Arsenal) - Varðist vel gegn Liverpool en komst upp með peysutog á Aleksander Isak í teignum sem hefði reynst dýrkeypt.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Romeo Lavia (Chelsea) - Lagði upp gott mark og var lúsiðinn á miðjunni í 2-0 sigri Chelsea á United.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Declan Rice (Arsenal) - Skilaði inn góðri vakt á Anfield og lagði upp eina mark leiksins.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Tatsuhiro Sakamoto (Coventry) - Leikmaður sem fer undir radarinn en skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í sigri gegn Sunderland um helgina.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Johan Manzambi (Aston Villa) - Þessi 21 árs gamli leikmaður heldur áfram að gera góða hluti og lagði hann upp eina mark Villa í jafntefli gegn Fulham.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Ollie McBurnie (Hull) - Skotinn skemmtilegi var allt í öllu í liði Hull þar sem hann skoraði og lagði upp í 2-2 jafntefli við Ipswich.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Taiwo Awoniyi (Coventry) - Stóri maðurinn skoraði magnað mark í sigri gegn Sunderland. Markið var hans fyrsta fyrir Coventry í deildinni.

Mynd: Coventry

Stjórinn: Frank Lampard (Coventry) - Liðið vann sannkallaðan sex stiga leik gegn Sunderland um helgina og komu sér þar með úr fallsæti. Coventry er nú með 9 stig í 16. sæti, tveimur stigum meira en Man Utd.

Mynd: EPA


Mynd: BBC
