Raul Jimenez verður á sjúkrahúsi fram yfir helgina en hann hefur legið þar síðan hann fékk höfuðhögg í leik Arsenal og Wolves um síðustu helgi.
Jimenez höfuðkúpubrotnaði og gat ekki haldið leik áfram eftir högg frá David Luiz. Jimenez lá í talsverðan tíma á vellinum og þurfti að fá súrefni áður en farið var með hann á sjúkrahús.
Jimenez höfuðkúpubrotnaði og gat ekki haldið leik áfram eftir högg frá David Luiz. Jimenez lá í talsverðan tíma á vellinum og þurfti að fá súrefni áður en farið var með hann á sjúkrahús.
Wolves hefur gefið það út að Jimenez sé á góðum batavegi og muni útskrifast af sjúkrahúsinu eftir helgina.
Óvíst er hversu lengi Jimenez verður frá.
Athugasemdir