Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. desember 2020 18:04
Brynjar Ingi Erluson
Paredes vill fá Messi til PSG - „Það vilja allir fá hann hingað"
Paredes vill fá Messi til PSG
Paredes vill fá Messi til PSG
Mynd: Getty Images
Leandro Paredes, miðjumaður Paris Saint-Germain, tekur undir orð Neymars en hann vonast til að fá Lionel Messi til félagsins næsta sumar.

Neymar ræddi við fjölmiðla eftir 3-1 sigur PSG á Manchester United í gær en þar sagðist hann vilja fá tækifærið til að spila aftur með Messi.

Þeir voru liðsfélagar hjá Barcelona og mynduðu eitt öflugasta sóknarþríeyki heimsins ásamt Luis Suarez.

Messi verður samningslaus næsta sumar og eru engin áform um að hann framlengi við félagið eftir fíaskóið sem átti sér stað í sumar er Messi reyndi að fá samningi sínum rift.

„Messi til PSG? Ég vona það og það vilja allir fá hann hingað en það verður hans ákvörðun. Við erum með magnaðan hóp, góða leikmenn og við ætlum að nýta okkur það."

„Eins og ég segi þá vona ég að Leo taki þá ákvörðun sem hentar honum best en við munum taka honum með opnum örmum,
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner