Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. desember 2022 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lloris jafnar met Thuram á morgun - „Mikill heiður"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hugo Lloris markvörður franska landsliðsins jafnar Lilian Thuram og verður leikjahæsti leikmaður Frakka frá upphafi þegar liðið mætir Póllandi í 16-liða úrslitum á HM á morgun.

Þessi 35 ára gamli markvörður Tottenham í ensku úrvalsdeildinni hefur leikið 141 landsleik til þessa.


„Þetta er ekkert lítið afrek. Þetta er mikill heiður og ég er mjög stoltur, þetta skiptir þó ekki jafn miklu máli og leikurinn í 16-liða úrslitunum."

Lloris spilaði sinn fyrsta landsleik í nóvember árið 2008 aðeins nokkrum mánuðum eftir að Thuram lagði landsliðsskóna á hilluna.

„Í mínum augum er HM aðalatriðið. Ég vil spara alla mína orku fyrir leikinn á morgun því þetta verður annar slagur," sagði Lloris.

„Ég mun meta þetta leikjamet betur þegar keppninni er lokið og ég vona að hún endi á besta veg."


Athugasemdir
banner
banner
banner