Fotbolti.net
04.02.21 - 17:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alvaro áfram hjá Þór (Staðfest)

Alvaro áfram hjá Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Alvaro Montejo og knattspyrnudeild Þórs hafa komist að samkomulagi um að leikmaðurinn komi aftur til Þórs og spili með liðinu á komandi leiktíð," segir á heimasíðu Þórs.

Alvaro Montejo er þrítugur spænskur framherji sem raðað hefur inn mörkunum fyrir Þór undanfarin ár.
Alvaro hefur skorað 42 mörk í 64 leikjum með Þór og er á leið í sitt fjórða ár með liðinu. Hann hefur áður leikið með Huginn, Fylki og ÍBV hér á landi.

„Eftir leiktíðina 2020, sem varð endaslepp eins og fólk þekkir, var óljóst hvort áframhald yrði á veru Alvaros hjá Þór, en samningur hans rann út í haust. Nú hafa náðst samningar milli knattspyrnudeildarinnar og Alvaros. Samningurinn gildir út árið og er von á honum aftur til Akureyrar í apríl," segir einnig í fréttinni.

Alvaro skoraði fjórtán mörk í átján leikjum þegar Þór endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra.

Heimild: Thorsport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.