Fotbolti.net
04.02.21 - 11:11
Elvar Geir Magnússon

Elias Tamburini til liðs við ÍA (Staðfest)

Elias Tamburini til liðs við ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vinstri bakvörðurinn Elias Tamburini gekk í vikunni í raðir ÍA og gerði hann eins árs samning við félagið.

Hinn 26 ára gamli Elias hefur spilað með Grindavík undanfarin þrjú ár.

Elias, sem er frá Finnlandi, hefur samtals spilað 54 deildar og bikarleiki með Grindvíkingum.

Í fyrra spilaði hann 18 af 20 leikjum Grindvíkinga í Lengjudeildinni.

Elias kom til Grindvíkinga eftir að hafa spilað í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

ÍA hafnaði í áttunda sæti Pepsi Max-deildar karla í fyrra.

„Elias mun verða mikill styrkur fyrir okkur Skagamenn. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í gula búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til ÍA," segir á heimasíðu ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.