Fotbolti.net
04.02.21 - 12:09
Elvar Geir Magnússon

Emir Dokara og Atli Rafn í Selfoss (Staðfest)

Emir Dokara.

Emir Dokara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar komust upp í Lengjudeildina í fyrra og hafa nú bætt við sig tveimur nýjum leikmönnum.

Emir Dokara, fyrrum leikmmaður Víkings í Ólafsvík, er kominn til félagsins. Hann á yfir 180 leiki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins.
„Ég er rosalega ánægður með það að vera kominn á Selfoss. Það eru spennandi hlutir í gangi á Selfossi, liðið er ungt og efnilegt. Ég þekki nokkra leikmenn í Selfoss-liðinu sem og Dean Martin þjálfara þannig ég á ekki von á því að það muni taka langan tíma að kynnast liðinu," segir Emir.

Hann er miðvörður og hefur spilað með Selfyssingum í Fótbolta.net mótinu í janúar.

Þá er miðjumaðurinn Atli Rafn Guðbjörtsson kominn frá Ægi í Þorlákshöfn. Atli er fæddur árið 1998 og hefur leikið 53 leiki fyrir meistaraflokk Ægis. Hann hefur æft og spilað með Selfyssingum undanfarnar vikur.

Atli Rafn í Selfoss!

Þorlákshafnarbúinn Atli Rafn Guðbjartsson er genginn í raðir Selfoss frá Ægi.

Atli Rafn er...

Posted by Selfoss Fótbolti on Þriðjudagur, 2. febrúar 2021
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.