Fotbolti.net
04.02.21 - 12:03
Elvar Geir Magnússon

Guðmundur Steinn í TSV Abtswind (Staðfest)

Guðmundur Steinn Hafsteinsson.

Guðmundur Steinn Hafsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson samdi í vikunni við þýska félagið TSV Abtswind sem leikur í 5. deild þar í landi.

Í nóvember var greint frá því að Guðmundur væri að flytja ásamt fjölskyldu sinni til Þýskalands.

Þessi 31 árs gamli framherji bjó í nokkra mánuði í Þýskalandi í byrjun síðasta árs áður en hann samdi við KA þar sem hann skoraði sex mörk í sautján leikjum í Pepsi Max-deildinni í fyrra.
Guðmundur Steinn er uppalinn Valsari en hefur meðal annars spilað með Stjörnunni og Víkingi Ólafsvík hér á landi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.