04.02.21 - 13:40
Elvar Geir Magnússon
Jordan Tyler í Aftureldingu (Staðfest)

Jordan Tyler.

Mynd: Afturelding - Raggi Óla

Jordan Tyler.

Mynd: Afturelding - Raggi Óla
Bandaríski sóknarmaðurinn Jordan Tyler hefur samið við Aftureldingu. Jordan hefur æft og spilað með Aftureldingu undanfarnar vikur en hann skoraði í 4-1 sigrinum á Þrótti Vogum síðastliðinn föstudag.
„Ég hef æft hér í nokkrar vikur og orðið heillaður af leikstíl liðsins. Hann gerist ekki betri en hérna. Ég er mjög spenntur að skrifa undir hérna og ég er viss um að þetta lið getur gert frábæra hluti á þessu ári," sagði Jordan við samfélagsmiðla Aftureldingar eftir undirskriftina.
Hinn 28 ára gamli Jordan hefur spilað á Íslandi síðan árið 2015 en hann hefur áður leikið með Hetti, KF, Þrótti Vogum og Víði. Árið 2018 var hann valinn besti leikmaður Þróttar en hann varð síðan fyrir erfiðum hnémeiðslum. Jordan hefur unnið sig úr þeim meiðslum.
„Jordan er kröftugur leikmaður sem hefur fallið vel inn í leikmannahópinn. Við í þjálfarateyminu erum mjög ánægðir með að hann hafi samið við okkur fyrir þetta spennandi tímabil sem er framundan," sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar.
Afturelding hafnaði í áttunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra.

📝 Bandaríski sóknarmaðurinn @JayTy_23 hefur samið við Aftureldingu. Jordan hefur æft og spilað með Aftureldingu undanfarnar vikur og staðið sig vel. Við bjóðum Jordan hjartanlega velkominn til Aftureldingar og hlökkum til að sjá hann á vellinum í sumar.#fotboltinet pic.twitter.com/olgGwHOIWt
— Afturelding (@umfafturelding) February 4, 2021