04.02.21 - 15:05
Magnús Már Einarsson
Kristófer Páll í Reyni S. (Staðfest)

Mynd: Reynir S.

Mynd: Reynir S.
Reynir Sandgerði, sem fór upp úr 3. deildinni í fyrra, hefur fengið Kristófer Pál Viðarsson í sínar raðir en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Kristófer, sem er 23 ára sóknar- og miðjumaður, hefur alls leikið 141 mótsleik og skorað í þeim 45 mörk. Þá lék hann 3 leiki með U16 landsliði Íslands á sínum tíma.
„Hann hefur verið ákaflega óheppinn með meiðsli á sínum ferli en nú telur hann að nóg sé komið af slíkum leiðindum og ætlar sér stóra hluti með okkur í sumar," segir á Faacebook síðu Reynis.
„Kristófer býr í Reykjanesbæ ásamt unnustu sinni og 5 mánaða gömlum syni þeirra."
„Stjórn ksd. Reynis býður Kristófer hjartanlega velkominn í félagið og hlakkar til að sjá hann á vellinum í Reynistreyjunni."