04.02.21 - 18:53
Victor Pálsson
Kwame Quee aftur í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kwame Quee er genginn aftur í raðir Víkings R. en hann birti mynd af sér í treyju liðsins á Instagram í kvöld.
Við myndina skrifar Kwame að hann hafi gert eins árs langan samning við Víkinga og segir að löng bið sé nú á enda.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, staðfesti það í samtali við mbl.is í dag að Víkingar væru að reyna að semja við leikmanninn.
Kwame er 24 ára gamall vængmaður en hann hefur áður leikið með Víkingi Reykjavík, Víkingi Ólafsvík og Breiðablik hér heima.
Kwame spilaði 10 deildarleiki með Blikum á síðasta tímabili en var einnig lánaður til Víkinga þar sem hann lék sex leiki.
Um er að ræða landsliðsmann Sierra Leone sem kom fyrst til Íslands fyrir fjórum árum og lék þá með Ólafsvíkingum.