Fotbolti.net
04.02.21 - 11:36
Elvar Geir Magnússon

Lára Kristín í Napoli (Staðfest)

Lára Kristín Pedersen.

Lára Kristín Pedersen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Miðjumaðurinn Lára Kristín Pedersen gekk í vikunni til liðs við ítalska úrvalsdeildarfélagið Napoli.

Lára Kristín féll með KR úr Pepsi Max-deild kvenna í fyrra.
Lára Kristín er annar Íslendingurinn í herbúðum kvennaliðs Napoli en varnarmaðurinn Guðný Árnadóttir er þar sem stendur á láni frá AC Milan.

Á ferli sínum hefur Lára Kristín, sem er fædd 1994, leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum ásamt því að hafa spilað með Aftureldingu, Stjörnunni, Þór/KA og KR á Íslandi.

Napoli er í fallbaráttu en liðið situr í 11. sæti ítölsku A-deildarinnar eða næst neðsta sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.