04.02.21 - 19:20
Victor Pálsson
Odion Ighalo til Al Shabab (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Framherjinn Odion Ighalo er genginn í raðir Al Shabab í Sádí Arabíu en þetta var staðfest í kvöld.
Ighalo ættu flestir enskir áhugamenn að kannast við en hann lék með Manchester United á síðasta ári.
Ighalo var lánaður frá Shanghai Shenhua til Man Utd í janúar í fyrra og spilaði alls 12 deildarleiki fyrir liðið.
Shanghai vildi losna við Ighalo endanlega af launaskrá en hann fékk afar vel borgað í kínversku Ofurdeildinni.
Al Shabab hefur nú samið endanlega við leikmanninn og hefur hann sagt skilið við Shanghai.
Ighalo er 31 árs gamall framherji og lék með Watford á Englandi frá 2014 til 2017.