04.02.21 - 12:30
Hafliði Breiðfjörð
Þröstur Mikael í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík hefur samið við Þröst Mikael Jónasson en hann kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni.
Þröstur samdi við Grindavík út tímabilið 2022.
Þröstur er miðju- og varnarmaður að upplagi og lék með Grindavík á miðjunni í sigurleik gegn Keflavík í Fótbolta.net mótinu um síðustu helgi.
„Við erum mjög ánægðir með að hafa samið við Þröst sem er kraftmikill og orkumikill leikmaður,“ segir Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur. „Þröstur gefur okkur fleiri kosti á miðjusvæðinu og getur einnig leyst varnarstöður vel. Hann hefur staðið sig mjög vel á æfingum með Grindavík á síðustu vikum og eflir breiddina í liðinu.“
Þröstur Mikael er 21 árs gamall og hefur leikið 94 leiki með uppeldisfélaginu sínu Dalvík/Reyni. Þess má geta að Þröstur er sveitungi þjálfarans Sigurbjörns sem ólst upp á Dalvík.