ÍA tilkynnti rétt í þessu að Böðvar Böðvarsson væri búinn að gera tveggja ára samning við ÍA. Hann kemur til félagsins frá uppeldisfélaginu, FH. Fótbolti.net sagði frá því á mánudag að Böðvar væri á leið í ÍA.
Böðvar er þrítugur vinstri bakvörður sem á að baki fimm A-landsleiki, lék erlendis sem atvinnumaður í Danmörku, Póllandi og Svíþjóð og varð Íslandsmeistari með FH tímabilin 2015 og 2016.
Böðvar er þrítugur vinstri bakvörður sem á að baki fimm A-landsleiki, lék erlendis sem atvinnumaður í Danmörku, Póllandi og Svíþjóð og varð Íslandsmeistari með FH tímabilin 2015 og 2016.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem ÍA fær í sínar raðir í vetur því áður höfðu þeir Gísli Eyjólfsson, Rafael Máni Þrastarson og Guðmundur Þórarinsson gengið í raðir félagsins.
„Við bindum miklar vonir við Böðvar sem bætir við miklum sigurvilja, reynslu og gæðum í leikmannahóp liðsins," segir í tilkynningu ÍA.
Athugasemdir


