Böðvar Böðvarsson er að ganga í raðir ÍA en hann kemur frá uppeldisfélagi sínu, FH. Það vakti mikla athygli í síðustu viku þegar Böðvar sagði við Fótbolta.net að hann hefði fengið þau skilaboð frá þjálfara sínum, Jóhannesi Karli Guðjónssyni, að hann mætti finna sér annað félag. Vinstri bakvörðurinn hefur ekki spilað fyrir annað félag á Íslandi en FH.
Fótbolti.net ræddi í dag við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, um af hverju Böðvar, sem átti tvö ár eftir af samningi við FH, sé á förum frá félaginu.
Fótbolti.net ræddi í dag við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, um af hverju Böðvar, sem átti tvö ár eftir af samningi við FH, sé á förum frá félaginu.
„Það voru blikur á lofti að hlutverk hans yrði minna en síðastliðin tvö ár, hann var eðlilega ekki sáttur við það, vill náttúrulega vera í risastóru hlutverki, og þá varð þetta niðurstaðan," segir Davíð.
Af hverju var hugsunin að hann yrði í minna hlutverki?
„Það er eitthvað sem er á milli okkar og leikmannsins. Ég vil ekki tjá mig brjálæðislega mikið um það í ljósi þess að þetta voru samtöl milli leikmanns og þjálfara og svo mín og Bödda."
Böddi var varafyrirliði í fyrra. Var búið að velja hann sem nýjan fyrirliða liðsins?
„Nei, það var ekki búið að ganga frá því."
Það er ekkert sem kemur upp, agavandamál eða eitthvað slíkt?
„Nei, alls ekki. Það var útlit fyrir að hlutverkið yrði minna og það var eðlilega kannski eitthvað sem honum leist ekki vel á. Það var alls ekkert agavandamál, það er hægt að slá það af borðinu."
Það var mikið slúðrað um hvað hefði gerst. Einhverjar sögur um að Böddi hefði ekki verið 'all-in' á æfingum í janúar. Var það staðan?
„Nei, eftir því sem ég best veit þá var hann eins og alltaf að gefa sig allan í þetta. Þessi ákvörðun snýst frekar um leikstíl og annað slíkt. Það hefur aldrei verið neitt upp á Bödda að klaga varðandi hvað hann leggur í hlutina."
Eruð þið að sjá fyrir ykkur að vinstri bakvörður FH spili meira miðsvæðis en áður?
„Það væri ekkert rosalega sniðugt hjá mér að segja þér núna hvernig við ætlum að spila. Þessi ákvörðun er tekin út frá því að þjálfarinn og þjálfarateymið töldu að hans hlutverk yrði minna. Þá fannst mér eðlilegast að leikmaður á hans kaliberi, sérstaklega ef hann væri ekki sáttur með það, að hann fengi þá að hugsa sér til hreyfings."
Skilur þú óánægju stuðningsmanna FH að uppalinn leikmaður og sigurvegari sem Böddi hefur sýnt að hann er sé farinn?
„Já, ég skil alveg pirringinn, það er eðlilegt. Þetta var erfið ákvörðun. Sama hvort það er ég eða aðrir sem starfa hjá félaginu þá er maður alltaf með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Þetta var erfið ákvörðun að leyfa Bödda að fara. Ég er að reyna búa til gott fótboltalið á þeim forsendum sem maður vill byggja liðið upp á. Þetta var niðurstaðan. Það er eðlilegt að það séu tilfinningar og menn séu ósáttir. Það sem við getum einbeitt okkur að er að nú er þetta mál að klárast og við erum að einbeita okkur að því að vera eins vel undirbúnir og við getum þegar tímabilið byrjar."
Þurfið þið að fá inn mann í hópinn í staðinn fyrir Bödda?
„Við erum að skoða það. Það er ekkert fast í hendi eða neitt svoleiðis. Hvort sem það kemur einhver beint inn fyrir Bödda eða óbeint, það á eftir að koma í ljós. Það púsl þarf að passa nokkuð vel inn í það sem við erum að gera og við erum að skoða leikmannamarkaðinn hérlendis og erlendis. Það verða pottþétt einhverjir nýir leikmenn tilkynntir áður en tímabilið byrjar."
Er ákvörðunin að einhverju leyti fjárhagslegs eðlis?
„Í raun ekki. Auðvitað getur maður sagt að maður þarf að taka tillit til ansi margra hluta þegar þú leyfir leikmanni að fara. Aðalástæðan fyrir því að þetta fer er sú að það leit út fyrir að hlutverkið hans yrði minna. En auðvitað koma fjárhagslegir hlutir inn í, en það er algjört aukaatriði í þessu máli."
Hvernig líður þér sem fyrrum liðsfélaga hans með það að hann sé að fara, eru tilfinningar í þessu?
„Það eru tilfinningar í þessu, auðvitað er þetta hundleiðinlegt. Böddi er góður vinur minn og verður það vonandi áfram. En svo er þetta þannig að þetta er fótbolti. Auðvitað erum við á Íslandi og þetta er ekki full atvinnumennska, en þetta er 'business' líka og maður þarf stundum að taka tilfinningarnar út úr þessu og reyna gera það sem er best fyrir félagið."
Ertu búinn að hugsa hugsunina að sjá Bödda í gulu á Kaplakrikavelli í sumar?
„Nei, ég er nú ekki búinn að gera það. En það verður bara gaman að fá hann í heimsókn hingað og við bjóðum hann velkominn. Vonandi, eins og allir aðrir, fer hann héðan tómhentur eftir 90 mínútur."
Fær FH eitthvað greitt fyrir hann?
„Það er bara samkomulag milli okkar og Skagans. Það er ekkert launungarmál að hann er ekki að fara á eðlilegum prís miðað við leikmann á hans kaliber."
Það hafa margir leikmenn FH verið orðaðir í burtu frá félaginu eftir að fjallað var um að Böðvar væri á förum. Eru einhverjir fleiri á förum frá FH?
„Maður er búinn að heyra sögur um að það séu allir að fara frá okkur. Það er gaman að tala og sögurnar og skilaboðin sem maður hefur fengið undanfarna daga... ég veit ekki alveg hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Ég ræddi við þig um daginn þegar Siggi fór, það getur vel verið að það verði frekari breytingar en þær verða ekki margar. Ég hef heyrt út undan mér að þessi og hinn séu til sölu, það er að langmestu leyti kjaftæði. Við erum að reyna eftir okkar bestu getu að búa til mjög sterkt og samkeppnishæft lið á þeim forsendum sem við viljum byggja það upp á. Ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu tímabili og er handviss um að við verðum með lið sem mun gera sig gildandi í þessari deild."
Þú segir að langmestu leyti kjaftæði, einhverjir sem munu lesa þetta munu þá halda að einhverjir séu til sölu.
„Eins og ég hef alltaf sagt, hvort sem það eru félög eða blaðamenn sem hafa samband við mig og spyrja út í einhverja leikmenn, það eru allir til sölu fyrir rétt verð. En það er samt þannig að þeir leikmenn sem hafa verið nefndir, það er ekki verið að reyna losa þá, og alls ekki. En ef það kemur tilboð sem ég get ekki sagt nei við, þá segi ég já við því. En allt tal um að sem dæmi Ísak (Óli Ólafsson, nefnt í Dr. Football í gær), Baldur Kári, Tómas (Orri) og Kjartan (Kári) séu allir til sölu. Það er bara rangt. Þetta eru mikilvægir leikmenn í hópnum okkar og til þess að þeir ættu að hreyfa sig eitthvert, þá þyrftu að koma alvöru tilboð. Þá myndi maður skoða það. Annars eru þetta gaurar sem við treystum á að verði lykilmenn í sumar."
Með Bödda fer reynsla og aldur úr liðinu. Sjáið þið fyrir ykkur að þið þurfið að fá inn í hópinn einhvern með úrvalsdeildareynslu og geti axlað mikla ábyrgð?
„Já, við erum að skoða það að bæta við leikmanni sem er með nokkur ár á háu getustigi undir beltinu. Eins og ég sagði um daginn þá verður það ekki þannig að við verðum með ellefu menn sem eru 20 ára og yngri. Við viljum vera með ungt og spennandi lið sem getur spilað agressífan fótbolta og getur farið hátt á völlinn. En á milli verðum við að vera með einhverja sem búa yfir mikilli reynslu og geta gefið mikið af sér til annarra leikmanna, sérstaklega hjálpað þessum yngri. Við viljum líka vera með gæði til þess að spila á hæsta stigi á Íslandi," segir Davíð.
Athugasemdir



