Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 10:32
Elvar Geir Magnússon
Dóttir Terry bað hann um að birta ekki myndband sem kætir stuðningsmenn Arsenal
Terry meðal áhorfenda á körfuboltaleik.
Terry meðal áhorfenda á körfuboltaleik.
Mynd: EPA
John Terry, fyrrum fyrirliði Chelsea, fylgdist með undanúrslitaleik Arsenal og Chelsea heima hjá sér ásamt dóttur sinni.

Hann tók upp myndband á símann sinn þar sem hann vonaðist eftir marki frá Chelsea á lokamínútunum, sem hefði þá jafnað einvígið. Hinsvegar skoraði Kai Havertz fyrir Arsenal sem vann leikinn 1-0 og einvígið 4-2. Arsenal er komið í úrslitaleik deildabikarsins.

Terry var klæddur í Chelsea fatnað og vonaðist eftir því að mark Havertz yrði dæmt af vegna rangstöðu en svo var ekki.

Dóttir hans bað hann um að birta myndbandið vandræðalega ekki opinberlega, en hann gerði það samt; við mikla kátínu stuðningsmanna Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner