Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 23:25
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man City og Newcastle: Marmoush heillaði á Etihad
Mynd: EPA
Omar Marmoush var maður leiksins er Manchester City komst áfram í úrslitaleik enska deildabikarsins á Etihad-leikvanginum í kvöld. Sky Sports var afar hrifið af frammistöðu Egyptans.

Marmoush skoraði tvennu fyrir Man City en fyrra markið gerði hann á 7. mínútu. Þetta var aðeins í þriðja sinn á tímabilinu sem Man City kemst yfir á fyrstu tíu mínútunum og var þetta í annað sinn sem hann er markaskorarinn.

Sky segir Marmoush gefa Man City öðruvísi eiginleika í sókninni. Það sé gott að geta breytt til þegar liðið er í baráttu um marga titla og geta hvílt Erling Braut Haaland inn á milli.

James Trafford, varamarkvörður Man City, nýtti þá tækifærið og fékk 8, eins og Marmoush. Tijjani Reijnders fær einnig áttu.

Margir leikmenn Newcastle voru slakir en alls fengu fimm byrjunarliðsmenn 5 í einkunn.

Man City: Trafford (8), Nunes (7), Khusanov (7), Ake (6), Ait-Nouri (7), Gonzalez (6), O’Reilly (7), Foden (6), Reijnders (8), Semenyo (7), Marmoush (8).
Varamenn: Alleyne (6), Rodri (6), Haaland (7), Cherki (7).

Newcastle: Ramsdale (6), Trippier (6), Botman (6), Burn (5), Thiaw (6), Hall (5), Willock (5), Ramsey (6), Tonali (6), Gordon (5), Woltemade (5).
Varamenn: Barnes (7), Wissa (6), Murphy (6), Elanga (7), Osula (6).
Athugasemdir
banner
banner