Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 15:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári Sigfússon á leið í Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Sigfússon er á leið í Fylki. Leó Ernir Reynisson, vinur Kára, greinir frá tíðindunum á X og Fótbolti.net hefur fengið þau staðfest.

Kári kemur til uppeldisfélagsins eftir að hafa spilað með Keflavík síðustu tímabil. Hann er 23 ára kantmaður sem var valinn besti leikmaður Keflavíkur á síðasta tímabili. Hann skoraði alls tíu mörk fyrir Keflavík sem vann sér inn sæti í Bestu deildinni.

Hann var orðaður við fleiri félög í vetur, þar á meðal í efstu deild, en hefur ákveðið að semja við Fylki. Það var einnig áhugi á honum frá Finnlandi og AB í Danmörku.

Kári þreytti frumraun sína í meistaraflokki 2020 með Fylki, lék með Gróttu 2021, Elliða 2022, Þrótti Vogum 2023 og svo Keflavík síðustu tvö tímabil.

Athugasemdir
banner