Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 10:11
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Man Utd skjóta til baka á Garnacho
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho, leikmaður Chelsea, fór í viðtal fyrir seinni viðureign liðsins gegn Arsenal í undanúrslitum deildabikarsins sem fram fór á Emirates vellinum í gær.

„Allir vita hversu erfitt það er að spila þar. En ef Man United sem dæmi getur farið þangað og unnið þá getum við hæglega gert það," sagði Garnacho fyrir leikinn. Þessi ummæli hafa síðan komið í bakið á honum.

Garnacho byrjaði á bekknum á Emirates en Arsenal skoraði eina mark leiksins eftir að hann kom inn sem varamaður. Samtals vann Arsenal einvígið 4-2.

Stuðningsmenn Manchester United voru fljótir að skrá sig inn á samfélagsmiðla og skjóta á Garnacho, sinn fyrrum leikmann, og gera grín að ummælum hans.

„Eldist ekki vel," skrifaði einn stuðningsmaður á X og annar birti broskall sem var grenjandi úr hlátri og skrifaði: „Hvernig gekk þetta hjá þér?"
Athugasemdir
banner
banner