Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 19:27
Kári Snorrason
Tekst Brasilíumanninum unga að fylla í skarð Semenyo?
Duracell
Rayan var keyptur Bournemouth frá Vasco de Gama á 25 milljónir punda.
Rayan var keyptur Bournemouth frá Vasco de Gama á 25 milljónir punda.
Mynd: Bournemouth
Rayan skoraði 20 mörk í 57 leikjum fyrir brasilíska félagið.
Rayan skoraði 20 mörk í 57 leikjum fyrir brasilíska félagið.
Mynd: AFC Bournemouth
Brasilíski táningurinn Rayan kom feiknarsterkur inn af bekknum í leik Bournemouth gegn Wolves um síðustu helgi. Hann kom inn á eftir rúmlega klukkustundar leik og gerði sig heldur betur gildandi.

Þá átti hann glæsilega stoðsendingu í seinna marki Bournemouth sem innsiglaði sigurinn ásamt því að ógna mikið á kantinum. Rayan var keyptur frá Vasco da Gama í janúarglugganum og var þetta hans fyrsti leikur fyrir Bournemouth.

Þessum nítján ára gamla Brasilíumanni er ætlað að fylla skarð Antoine Semenyo, sem hefur gengið til liðs við Manchester City, og óhætt er að segja að fyrstu kynni hans af enska boltanum hafi lofað góðu.

Semenyo hafði byrjað tímabilið afar vel með Bournemouth áður en hann var sóttur til Manchester. Hann hafði skorað tíu mörk í 21 leik það sem af var tímabils. Það er því erfitt verkefni sem Brassinn stendur fyrir ef honum er ætlað að feta í fótspor Ganverjans.

„Úlfarnir voru komnir framarlega og eikmaður með hans hæfileika getur fundið svæði fyrir aftan í skyndisóknum. Hann sýndi mikla yfirvegun í stoðsendingunni en við þurfum enn að hjálpa honum að aðlagast,“ sagði Andoni Iraola, þjálfari Bournemouth, um Rayan eftir leikinn.

Fyrir sterku innkomu sína á laugardaginn hlýtur Rayan hina eftirsóttu Duracell viðurkenningu frá Fótbolta.net.


Athugasemdir
banner
banner