Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. mars 2020 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Talið að Tosun spili ekki meira á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Cenk Tosun var í dag á æfingasvæði Everton í skoðunum út af meiðslum sem hann varð fyrir á æfingu hjá Crystal Palace.

Tosun fór í janúar á láni til Palace frá Everton. Hinn 28 ára gamli Tosun hefur skorað eitt mark í fimm leikjum með Palace, sem á forkaupsrétt á honum.

Tosun varð fyrir hnémeiðslum og verður mögulega frá keppni út þetta tímabil. Því er spurning hvort að Palace komi til með að nýta forkaupsréttinn.

Meiðslin gætu haft áhrif á þáttöku hans í Evrópumótinu með Tyrklandi í sumar.

Tosun kom í enska boltann árið 2018 er Everton borgaði Besiktas 27 milljónir punda fyrir hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner