Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 04. mars 2026 22:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Scholes með athyglisverða færslu
Paul Scholes.
Paul Scholes.
Mynd: EPA
Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, skellti sér á Instagram áður en hann fór í háttinn og lét áhugaverð ummæli falla.

Scholes hefur talað um það síðustu daga að hann sé ekki sannfærður um sinn gamla liðsfélaga en Carrick stýrir United út tímabilið hið minnsta.

Það hefur gengið frábærlega hjá Carrick en fyrsti tapleikurinn kom í kvöld gegn Newcastle. Scholes ákvað að tjá sig að leik loknum.

„Það er klárlega eitthvað sérstakt við Michael (Carrick)... því United hafa verið ömurlegir þessa síðustu fjóra leiki. Góða nótt," skrifaði Scholes og vilja einhverjir meina að hann hafi þarna verið að skjóta eitthvað á sinn gamla liðsfélaga.

Hann endaði svo færsluna á því að lýsa yfir aðdáun sinni á Sandro Tonali, miðjumanni Newcastle.

Hér fyrir neðan má sjá færsluna.


Athugasemdir
banner