Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
banner
   mið 04. mars 2026 23:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu Orra syngja lagið sitt með stuðningsmönnum
Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: EPA
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Real Sociedad og syngja þeir iðulega lagið hans á vellinum.

Eftir sigur gegn Athletic Bilbao í undanúrslitum spænska bikarsins í kvöld ákvað Orri að taka lagið sitt með stuðningsmönnum.

Lagið, sem var samið fyrir stuttu, snýst í raun um að komast í bikarúrslitin og það varð að veruleika hjá Sociedad í kvöld.

Textinn í laginu er: „Por la mañana café. Por la tarde ron. Llévame a Sevilla. Orri Óskarsson," og á íslensku: „Kaffi á morgnana, romm á kvöldin, farðu með mig til Sevilla, Orri Óskarsson."

Úrslitaleikurinn fer fram í Sevilla og þar verður okkar Orri Óskarsson í eldlínunni.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið af Orra að syngja með stuðningsmönnum.




Athugasemdir
banner