Fotbolti.net
04.04.15 - 13:43
Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmarkvörður Færeyja í Stjörnuna (Staðfest)

Gunnar Nielsen spilar með Stjörnunni í sumar.

Gunnar Nielsen spilar með Stjörnunni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tilkynnti í dag að félagið hafi gert samning við Gunnar Nielsen landsliðsmarkvörð Færeyjinga um að spila með liðinu á komandi tímabili.
Ingvar Jónsson yfirgaf félagið í sumar og Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari liðsins tilkynnti í haust að hann ætlaði ekki að fá markvörð heldur setja traust sitt á Sveinn Sigurð Jóhannesson og Arnar Darra Pétursson.

Hann hefur nú snúið frá þeirri ákvörðun sinni og samið við Gunnar Nielsen.

,,Stjórn knattspyrnudeildar Stjörnunnar fagnar því að geta boðið hinum fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem eiga eftir að gegna lykilhlutverki hjá Stjörnunni á komandi árum uppá að læra af og vinna með reyndum landsliðsmanni eins og Gunnari,\" segir í tilkynningu félagsins.

Gunnar er Stjörnunni góðkunnur en hann var í leikmannahóp Motherwell í sumar þegar Stjarnan lék við þá í undankeppni evrópudeildarinnar með eftirminnanlegum árangri.
Á síðustu árum hefur hann leikið með Silkeborg, Tranmere Rovers, Wrexham og Manchester City.

Sjá einnig:
Stjarnan mun ekki fá nýjan markvörð fyrir Ingvar

Heimild: Vefur Stjörnunnar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.