Heimild: Vísir
„Okkur þykir miður að Depay hafi birt þessa mynd. Það er ekki náttúrulegt að haga sér svona með villt dýr. Dýrin kveljast," sagði Sanne Kujpers sem starfar fyrir dýraverndunarsamtök í Hollandi.
Memphis birti mynd á Instagram í vikunni og fékk það hörð viðbrögð frá dýraverndarsinnum. Á myndinni er Depay ásamt gæludýri heima hjá sér. Gæludýrið er óhefðbundið en hann á lígur. Lígur er afkvæmi tígrisynju og karlljóns.

„Við vonum að hann fjarlægi myndirnar, þetta gefur ekki gott fordæmi. Villt dýr eiga heima í náttúrunni, þau eru ekki hér til að skemmta okkur og við eigum ekki að ýta undir svona lagað," bætir Kujpers við.
Depay gefur lítið fyrir gagnrýnina: „Fyrir fólk sem veit ekki staðreyndir; hafið hljótt. Lígrar eru ekki villt dýr. Þeir fæðast ekki í náttúrunni. Ég held að þeir myndu ekki einu sinni geta lifað úti í náttúrunni," segir Depay.
Athugasemdir